-
Sextíuogfjórir súrkálshausar
svifu um í kvöldroða himins.
Þreyttir í augum og þjáðir af kvefi
(þessvegna klikkaðir líka - hver veit?)
lögðust þeir lokst á grautartanga.
Leið og beið uns þeir aftur
upp gátu risið og endalaust garfað
- ítarlegar en nokkur fyrr -
í heimsins þjáðu handaskolum.
Helvíti lítils virði er það.
Svo endar saga:
í salti.
Sem sagt : Alþingi hefur störf á ný, að loknu sumarleyfi.
(63 + 1 – eða hvað ? )
Greinileg kunnátta í bragfræðum héráferð, þráttfyrir rímleysi
(enda er rím stórlega ofmetið) . . .