Jamm, þessi strásykursæti öðlingur með andlausu froðuna sem allir hafa gaman að snýr aftur. Lífið öðlast aftur tilgang. Endalausir dagar hrútleiðinlegum og langdregnum langlokum Halla og félaga eru á enda. Sem mjög hafa þó verið mærðar. Ógn og leiðindi segji ég bara. Eins og ígerð. En nú kemur hlewagastiR aftur. Úrkynjuðu vísnaviðrinin geta séð fram á náðuga daga.
Gaman að heyra en gamanast var þó að heyra frá þér kæri vinur geturðu gefið mér smá tips um verðbréfamarkaðin í Svíþjóð væri það vel þegið
Mikið veist þú mikið um hann Hlebba, Vestfirðingur. Það mætti halda að þið tveir væru æskuvinir.
Ég þarf að koma með játningu. Ég hef ekki sagt alveg satt. hlewagastiR hringdi áðan og skammaði mig. Sagði að ég gerði mér ekki grein fyrir alvarleika málsins. Ég fór allur í kerfi, sýndi öll stig taugaveiklunar, sjálfsvorkunn, ásakanir og afneitun. Lofaði á móti að sannfæra offara um að hann gæti ræktað gullfiska úr kavíar.
ertu þá segja að hann sé ekki að koma eða bara að þú hafir ekki mátt segja frá því? [titrar á beinunum]
Ertu kannski að tala um þennan gerfihlewagasiR sem var hér í fyrra? Hann getur nú átt sig.
Neibb, þetta var meistarinn sjálfur. Sagðist varla nenna að eyða orðum í mig. Hann væri svo miklu gáfaðri og ætti erfitt að leggjast niður á mitt plan. Og meira í þeim dúr. Að ég hefði takmarkaða andlega burði, innlegg mín væru ómerkileg og einföld, já ég ætti að skammast fyrir að draga þau fram á borð. Og allt þetta af því ég væri svo illa læs. Eftir að samtalinu lauk þurfti ég þrjú glös af nýmjólk til að milda versta sjokkið.
Ef að hlebbi þorir ekki að syna sig hérna þá hann um það
það er hisvegar leiðinlegt ef hann treystir sér ekki til að taka þátt í umræðunum hérna því að þær verða nú bara hressilegri við það.
Vestfirðingur er ágætis gaur. Við sátum inni saman fyrir mörgum árum en það er liðin tíð.
Þú átt ekki að láta þennan rusta vaða yfir þig á slormökuðum skónum Vestfirðingur. Taktu þig saman í andlitinu og skoraðu á hann í leðjuglímu í byggingarpittinum við Héðinshúsið og sýndu honum hvar Davíð keypti bölið.