Það er alltaf til nokkurs að hlakka
Það er fátt hægt að hugsa sér yndislegra en þegar konan manns kemur heim frá Ríkinu með overraskelse handa manni: Tuborg Julebryg. Æ, þá hlýtur að vera kominn veturinn. Þá reikar hugurinn aftur í tímann þar sem við sátum saman í ofurlitlum ölkjallara í Kaupmannahöfn og slökuðum niður hverjum pottinum af téðu bruggi á fætur öðrum. mmm. Og ekki var síldin verri. Áreiðanlega úr Dumbshafi.