Frétt — N?mi Fannsker — 27. 2. 2013
Inniheldur ekkert mannakjöt
Ólafur Ragnar Grímsson. Takið eftir vélrænu augnaráðinu.

Forseti Íslands inniheldur ekkert mannakjöt. Þetta er niðurstaða Matvælastofnunar, sem kannaði innihald forsetans.

Raunar kom í ljós að forsetinn inniheldur alls ekkert kjöt og raunar engin prótín. Hann inniheldur hinsvegar töluvert af kopar og títaníum, sem rennir stoðum undir kenningar stjórnmálafræðinga þess efnis að hann sé í raun vélmenni.

Belgísk vaffla

fannst á mótum Lækjargötu og Bankastrætis aðfaranótt sunnudags. Eigandi og/eða forráðamaður er vinsamlegast beðinn um að gefa sig fram. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir:
27. 2. 2013 — Enter

Fullreynt þykir að gera núverandi Vestmannaeyjaferju út frá Landeyjahöfn. Hafa sérfræðingar reiknað út að mun hagkvæmara sé að flytja Vestmannaeyjar í …

26. 2. 2013 — Enter

Samkvæmt könnun sem Baggalútur lét gera í dag kemur berlega í ljós að þjóðin hefur ekki nokkurn minnsta áhuga á …

26. 2. 2013 — Enter

Meintur fávitaháttur tveggja bræðra er fyrndur og hefur umfangsmikilli rannsókn á fávitagangi þeirra því verið hætt. Bræðurnir voru atkvæðamiklir í samkvæmislífi …

24. 2. 2013 — Enter

Þau undur og stórmerki gerðust í lok landsfundar Sjálfstæðisflokks að Laugardalshöll hóf sig á loft og sagði skilið við plánetuna …