Frétt — N?mi Fannsker — 23. 5. 2003
Nýr félagsmálaráðherra tekur við embætti
Árni Magnússon

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherraefni framsóknarflokksins, kynnti í gær nýjan félagsmálaráðherra sem tekur við af Páli Péturssyni, seðlabankastjóraefni flokksins. Fyrir valinu varð Árni Magnússon, sem er landsmönnum að góðu kunnur fyrir margvísleg félagsstörf sín í þágu íslenskrar menningar.

Baggalútur óskar íslensku þjóðinni til hamingju með nýja ráðherrann og veit að hann verður þjóð sinni til sóma nú sem endranær!

Yfirlýsing

Þungyrði þau er ég lét ölvaður falla í garð Vilhjálms Egilssonar afturkalla ég hér með.

Reykjavík, Apríl 2009
Davíð Oddsson

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: