Hafnfirskur rafmagnstannbursti varð hlutskarpastur í Sónar söngvakeppninni í gærkvöldi. Hann sigraði örugglega í símakosningu eftir einvígi við hálfsjálfvirkt krullujárn úr Vesturbænum.
Tannburstinn þótti framkalla seiðandi, jafnvel dáleiðandi, elektróník — sérstaklega á hæstu stillingu sinni. Og þótti um margt minna á hljómsveitina GusGus á upphafsárum sínum.
Burstinn mun keppa fyrir Íslands hönd á alþjóðlegri raftónlistarhátíð í Kaupmannahöfn í vor — ef samningar nást við eiganda hans, sem ekki vissi af þátttöku þessa fallega erfðagrips í keppninni.
Nýtt á herrann
Flónelsjakkar, flónelsbuxur, flónelsnáttföt.
Fjármálaráðuneytið – aukin upplifun í alfaraleið.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.
Íslenskur karlmaður hefur vakið athygli undanfarið en hann hefur farið um landið og bent á hið augljósa. „Ég er aðallega að …
Meintur hippster var í nótt gerður brottrækur úr hippsteragreni í miðbæ Reykjavíkur þegar upp komst að hann var í raun …
Loftvarnaæfingin „Morðóði víkingurinn 2014“ sem nú fer fram á Íslandi, hefur truflað byggð jólasveina á hálendinu. Lágflug herþotna ásamt ágangi …
Keppt verður í hómófóbíu á vetrarólympíuleikunum í Sochi í Rússlandi í ár. Er þetta í fyrsta sinn sem keppt er …