Það sem maður þarf að láta ganga yfir sig!
Lengi hefur ákveðið mannvirki verið merkt mínu nafni. Það hefur verið upphefð fyrir mig. Einhvern tíman var nafn mitt afmáð en einhver góðhjartaður skrifaði það aftur en bætti við það, þá stóð Flatus lifir. Aftur var nafn mitt afmáð en líklega sami geðprýðismaðurinn sem ritaði á mannvirkið Flatus lifir enn. Ég klökknaði við þetta. Fyrir skemmstu birtist svo bansett auglýsingin. Þessi auglýsing hefur haft það gildi eitt að leggja mannorð mitt í rúst. Helvítis auglýsingin gerir það að verkum að nú stendur Flatus lifir e. Nú er svo komið að e-töflufìklar hringja stöðugt og vilja kaupa töflur sem og vinir og ættingjar sem halda að ég sé kominn í e-töflurnar. Mamma talar ekki við mig lengur og pabbi hangir á línunni og vill kaupa. Fyrirtækið sem á auglýsinguna má alveg taka hana svo ég fái nú einhvern svefnfrið! Þetta var illa gert af þeim!
En hvað er verið að auglýsa. Það er svo langt síðan ég hef ekið fram hjá þessu mannvirki.
Téður Flatus mun ávallt lifa í hjörtum okkar, þrátt fyrir auglýsingar óvina ríkisins.
Maður ætti kannski að haska sér í að stofna alteregó til að debútera með það árið 2012? Eða jafnvel 13.