Mér finnst fótbolti leiðinlegur
það versta við fótbolta er að öllum sem finnst hann skemmtielgur eru hörundsárar veimiltítur sem taka allt persónulega
Tómur barnaskapur. Þ.e.a.s. glerið sjálft. Já, endilega mölvum það í spað!
Ég styð nú kókið í þessari báráttu sinni gegn ömurlegri íþrótt og legg til þessar þrjár staðreyndir:
1.Skapar rifrildi milli manna sem annars gætu lifað í sátt og samlyndi.
2.Það er aldrei sýnt frá neinum almennilegum íþróttum nema þessu boltadrasli.
3.Knattspyrna er eins og FM-957. Ógeð.
Já ég er sammála. Fótbolti er með eindæmum leiðinlegur. Svo er handbolti enn leiðinlegri. Formúlan og boxið er líka drepleiðinlegt. Hmmm.... eru einhverjar skemmtilegar íþróttir ? Fyrir utan Boccia auðvitað.
Já ég er sammála því. Ég átti náttúrulega bara við þessar almennu, viðteknu "vinsælu" íþróttir sem sýndar eru í sjónvarpi. Svona jaðaríþróttir eru náttúrulega bráðskemmtilegar en því miður er hægara sagt en gert að fá aðganga að þeim þar sem þær eru yfirleitt sýndar á einhverjum gervihnattarásum. Því er mál til komið að sjónvarpið og stöð 2 fari að sýna frá íþróttaviðburðum af þessu tagi.
Mígi saman ? Öfugt við að míga í sundur ? Úff, ég skil ekki. Best að hella meiri vodka í glasið og sulla smá eplasafa með.
-