— GESTAPÓ —
Coca Cola
Óbreyttur gestur.
Dagbók - 2/11/03
Ég hef aldrei verið í þessu ljótukallafélagi

Svona til að menn fari nú ekki að rugla mér saman við þessa servíettu fídusa.

Ég vil bara taka það fram að ég hef aldrei verið meðlimur í þessu blessaða Ljótukallafélgai, ég náði bara að smeigja inn einhverjum póstum þangað meðan það var frekar illa lokað fyrir okkur pöpulnum. Spyrjið Enter, hann getur staðfest frásögn mína.
En hvílíkt réttnefni, þarna fór fram ónáttúra sem enginn maður ætti að þurfa að berja augum. Mér hreinlega hryllir við þeirri tilhugsun að ég hafi umgengist þessa menn, mér finnst ég einhvernveginn svo skítugur. Ég held að það ættu allir að vera sammála um að þennan ósóma bera að hafa lokaðann fyrir óhörðnuðum sálum sem hingað kunna að álpast inn.

   (3 af 16)  
2/11/03 10:01

Heiðglyrnir

Svo er líka hægt að í vera kókbaði yfir nótt, brennisteinssýran og kolsýran í kókinu vinna á ljótukarla skítnum á ótrúlegan hátt. Að ekki sé talað um ef að legið er í kókbaðinu töluvert lengur, þá hverfa öll þessi vandamál.

2/11/03 10:01

bauv

Hann var í þessu lótukallafélagi.

2/11/03 10:01

Coca Cola

bauv, þar hefurðu rangt fyrir þér minn kæri. Ef þú skoðar source óþokkaspjallsins þar sem innlegg koma frá mér geturðu séð að allir eru þar stimplaðir óþokkar - en ekki ég.

2/11/03 10:01

bauv

jÁ,TÓK EKKI EFTIR ÞVÍ.

2/11/03 10:01

Coca Cola

Ooh, heiðarleg mistök, gæti komið fyrir alla eiginlega.

2/11/03 10:01

Hakuchi

Þú ert lélegur lygari kókdós. Þú ert sekari en frímúrari. Þér er hollast að játa að hafa verið hluti af ljótukallafélaginu, gera þannig hreint fyrir þínum dyrum og reyna að byggja upp sómasamlegt líf eftir það.

2/11/03 10:01

Coca Cola

Eins og ég sagði - spyrjið Enter

2/11/03 10:01

Vladimir Fuckov

Þó ótrúlegt megi virðast benda umfangsmiklar rannsóknir leyniþjónustu forsetaembættis Baggalútíu til að kókdósin segi hér satt og að hún hafi eigi verið í umræddu fjelagi þrátt fyrir að eiga innlegg á svæði Ljótukallafjelagsins.

2/11/03 10:01

Coca Cola

Vladimir til bjargar! En hvað finnst ykkur annars um þessi ljótukallastörf, er þetta kannski Lions klúbbur? Lionsklúbburinn Ljótukallarnir, pappír og berjaljós - servíettur og grindarbotnsæfingar!

Coca Cola:
  • Fæðing hér: 16/9/04 23:36
  • Síðast á ferli: 3/5/09 21:34
  • Innlegg: 28
Eðli:
Hæ ég er kók, þessi góði svalandi freiðandi kaldi guðdómlegi drykkur sem forfeðrar okkar fengu aldrei að kynnast. Drekktu kók - af því að forfeður þínir hefðu viljað það!
Fræðasvið:
Subliminal advertising
Æviágrip:
Fylltur, drukkinn, endurunninn, fylltur, drukkinn, endurunninn, fylltur, drukkinn, endurunninn, fylltur, drukkinn, endurunninn, fylltur, drukkinn, endurunninn, fylltur, drukkinn, endurunninn, f...