Lesbók15.09.02 — Myglar

Þetta er búin að vera erfið helgi. Loks á föstugdagskvöldið gerði ég mér ljóst, eftir mikla útreikninga, að eina leiðin til að ræða við verurnar sem ég tel að hafi upp á síðkastið reynt að hafa samband við jarðarbúa sé að nýta tungumálakunnáttu mjaldursins.Fyrir þá lesendur sem ekki vita þá er mjaldur (lat. Delphinapterus leucas) frekar smávaxin hvalategund sem aðallega býr á norðurheimskautssvæðinu. Fullvaxinn mjaldur er venjulega um 4,5 metrar á lengd og vega þeir allt að 1500 kg, og er karldýrið oftast aðeins stærra en kvenndýrið.

Á laugardagsmorguninn bað ég frænda minn, sem er fiskimaður á Svalbarða, að útvega mér lifandi mjaldur eins fljótt og auðið væri. Síðan hóf ég með aðstoð Kaktuzar að smíða laug í kjallara ritstjórnarskrifstofunnar og koma tækjabúnaðinum fyrir. Með aðstoð steypubílstjóra sem ég þekki fluttum við Hákon (en það nefnum við mjaldurinn) frá höfninni og á ritstjórnarskrifstofuna. Hann er nú kominn í laugina og virðist una sér nokkuð vel, þrátt fyrir vírana sem eru tengdir við hann.

Með því að tengja spennulind (stillanlega, allt að 200 volt) yfir Hákon, jóna vatnið í lauginni hans mátulega mikið, koma fyrir hljóðnemum í koki hans og tengja síðan við sendibúnaðinn ætti að vera hægt að koma á tengingu.

Tilraunirnar hefjast á morgun, um leið og ég hef hvílst nægilega til að byrja aftur. Vonandi rústa þessir vitleysingar í ritstjórninni ekki tækjauppsetningunni í millitíðinni.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182