Lesbók17.08.02 — Enter

Aðfaranótt föstudags dvaldist ég við skriftir í litlum sumarbústað á Suðurlandi. Það var indælt þó nýfengið frjóofnæmi hafi plagað mig - mér tókst að slá á það með kamillutei og viskíflösku.

Mér þykir gott að komast í snert við landið mitt. Það er eitthvað undarlega róandi við að standa á brókinni í knéhárri sinu, horfa á sólina klifra geispandi yfir jökulinn og hlusta á sefandi malið í rafmagnstannburstanum.

Og skelfing er Selfoss niðurdrepandi staður. Minnir mig alltaf á kaldan hafragraut sem ég píndi ofan í mig á táningsaldri. Kaldur, grár og skilur eftir sig megnt óbragð.

Gærkveldinu eyddi ég m.a. í félagsskap ungra flokksbræðra. Það var ágætt, enda vel veitt af bjór. Ég þoli samt afskaplega illa þegar þrútnir unglingspiltar með snuð í brjóstvasanum og fádæma ljóta bindishnúta kjaga til mín, slá um mig hring og vilja heilsa mér. Eins hata ég þega dægurlagadvergurinn Eyþór Arnalds leggur hönd á öxl mér. Hvað þarf ég að bíta þetta skrípildi oft áður en hann lætur mig í friði?

Fyrir undarlega fífldirfsku hætti ég mér niður í miðbæ þegar leið á kvöldið. Að venju tók það fljótt af. Ég var ginntur in á stað sem kennir sig við Kaffi. Gasklefar nasista komu fljótt upp í huga þegar inn var komið, slíkur var ágangurinn - og eftir að hafa kúldrast þar í rúma mínútu virtist frelsandi gasflaumurinn alls ekki sem verst hugmynd. Hvaðan kemur annars þessi ókennilega löngun fólks að klessa sér það nálægt öðrum manneskjum að óumflýjanlegt verði að hrinda þeim frá sér?

Til allrar hamingju gat ég forðað mér út um glugga á efri hæð, vegið mig eftir þakskegginu og rennt mér niður nálæga rennu. Taldi ég mig þá hólpinn og gekk áleiðis heim á leið. Ekki vildi þó betur til en svo að á næsta götuhorni hitti ég hóp kynvillinga sem ólmir vildu sýna mér frumsamið leikrit. Ég afþakkaði pent og hljóp við fót heim í öruggt skjól.

Um nóttina fékk ég hræðilega martröð um gult einbýlishús á Selfossi, þar sem ég bjó með kynhverfum rafmagnstannbursta og drakk te sem reyndist kaffi.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182