Lesbók14.05.02 — Númi Fannsker

Ég fór ásamt Enteri og Kaktuzi í viðtal í dag við virt tímarit. Við ræddum dágóða stund við unga blaðakonu sem gaf okkur kaffi frá Eþíópíu, allbragðmikið; kryddað með ferskvatnsþangi og ætiþistilsblöðum (ef mér skjátlast ekki). Þetta var sosum prýðilegt kaffisamsæti, fyrir utan kattarófétin sem þarna spígsporuðu um allt, en ég er með ofnæmi á afar háu stigi. Kettir eru með vitlausustu dýrum sem fyrirfinnast. Þeir hafa afskaplega lítinn heila, ekki ósvipaðan lundaheila að lögun og stærð. Þeirra hlutverk í náttúrunni er ekkert, utan að valda viðkvæmu fólki óþægindum. En kaffið var gott.

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182