Jú, í dag er miðvikudagur. Ég sit hér í góðu yfirlæti á kaffistofunni og glugga í dagblöðin. Allt er með kyrrum kjörum, piltarnir fóru út að spila blak og ég fæ langþráðan frið. Á morgun verður svo farið í upp í Skálholt - vonandi gengur það að óskum, verst hvað Númi er fjandi bílveikur.