Þá er Dr. Fritzherbert kominn til landsins í "vinnulotu"; ég hefi nú heyrt það áður. Ég hefi oft haldið því fram að hann sé ekki nógu vel gefinn fyrir Baggalút, og stend svosem við það. Væminn og hégómlegur, vælinn, spéhræddur og óttalega mikill "mannvinur". Hann hefur gjarnan á takteinum hugtök eins og: "tilfinningagreind", "trúnaðarbrestur", "fyrirgefning" og þess háttar uppskafningu. Oft getur hann þvaðrað um stríð í fjarlægum heimshornum tímunum saman, þó svo að ástandið í hans eigin heimalandi sé orðið allskelfilegt eins og nýjustu fréttir sýna. Hann er kjáni og bleyða, metnaðarlaus grautarhaus, meyr fyrir hjarta og seinn í hugsun. En hann kann að hella upp á kaffi blessaður, mér þykir nú svosem pínulítið vænt um kallinn. Enda fermingarbróðir minn.