Lesbók21.03.02 — Spesi

Nú er ég staddur á söguslóðum, nefnilega við Borgarfjörð að sinna ýmsum erindum og hefi ég verið hér í tvo daga. Ekki hófst ferðin vel, því ég var nýkominn framhjá Mosfelli þegar ég áttaði mig skyndilega á því að ég hafði gleymt að slökkva á garðúðunarkerfinu fyrir utan inngang skrifstofu ritstjórnar. Ekki nóg með það, heldur er ég sá eini sem kann að slökkva á því. Veðrið hefur bara verið svo gott undanfarið að mér þótti nauðsynlegt að vökva grasið og litlu blómin svo þau skrælni ekki í hitanum. Ansi er ég nú hræddur um að félagar mínir á Baggalúti hafi orðið ansi illa úti og blotnað þónokkuð á leið til vinnu. Ég vona að enginn alvarlegur skaði hljótist af.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182