Ég verð að segja að ég er ekki mjög hrifinn af nýja húsnæðinu okkar. Mér var tjáð að hér væri um afar rúmgóðar og þægilegar skrifstofur að ræða, en þegar til á að taka er hér bæði dragsúgur og næðingur. Vissulega er húsnæðið rúmgott, svo rúmgott að ég hef enn ekki fundið skrifstofur félaga minna í ritstjórn, né heldur rekist á þá á vappi. Ég er að vísu ekki með gleraugun mín, en ég get svo svarið að það er skip inni á kaffistofunni.