Lesbók10.01.02 — Númi Fannsker

Vaknaði að venju klukkan 6 og snæddi morgunverð. Fór að því búnu í laugarnar og synti mína 250 metra. Þar sem ég opna dyrnar að ritstjórnarskrifstofu Baggalúts, allhressilega að venju, rekur mig í rogastans þegar ég sé minn góða vin og samstarfsfélaga Enter liggja þar flatan á gólfinu og skera hrúta. Mér bregður nokkuð við þetta en sé hvers kyns er þegar ég kem auga á tvær bjórdósir sem standa þar á borðinu. Ekki þarf ég að taka fram að þær voru vitanlega tómar. Þarna hafði minn góði vinur setið að sumbli og þambað, ekki eina, heldur tvær dósir af öli og að því búnu dáið drottni sínum á skrifstofugólfinu. Ég hringdi samstundis á lögregluna og lét hirða hann. Er að fara að sækja hann núna, upp úr klukkan 19 á lögreglustöðina við Hverfisgötu, enda mun hann hafa sofið úr sér vímuna.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182