Lesbók11.03.05 — Númi Fannsker

Svo sannarlega er mjólk góð. Hún er svo góð að ekkert heimili telst heimili með heimilum nema eiga a.m.k. 50 lítra af mjólk í frystinum og annað eins í kæli. Landsmenn þamba mjólk hver í kapp við annan; þykkja bein og styrkja tennur. Á borðum þeirra er grjónagrautur og morgunkorn, heitt kókó og pönnukökur, flóuð mjólk, heimalöguð súrmjólk, mjólkurhristingar... Mjólk.

Já hún er góð þessi mjólk. Öll þessi ljúffenga mjólk. Namm hvað hún er góð. Hún er svo góð að mjólkurframleiðendur leggja nótt við dag að útvega þetta hvíta gull. Þennan lífsins vökva. Blessaðar kýrnar hafa ekki undan að buna útúr sér sætvolgum safa sínum og landsmenn bíða með opinn munn, tilbúnir að svelgja í sig alla þá mjólk sem rennur í áttina til þeirra. Já mjólk er góð.

Hún er góð í 5-6 daga - þá þarf að hella henni og opna næstu fernu.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182