Lesbók08.03.04 — Enter

Voðalegt er að sjá þessi feitu börn út um allt.

Þetta er kjagandi fyrir augunum á manni daglangt, svínspikað og hlaunatroðið, maulandi sætindi og þambandi sykurvatn.

Hvað gengur foreldrum eiginlega til að láta afkvæmi sín afmyndast svo í útliti að þau varla geta lyft á sér skvapkendum útlimum til að nálgast og krækja í næsta glassúrsnúð eða kremkex?

Þetta er í hæsta máta ógeðfellt.

Í hamingjunnar bænum rífið þessa afskræmdu keppi út úr ískápnum og sendið þá út að sparka bolta, synda eða í það minnsta látið þau ganga nokkra metra áður en þau setjast að snæðingi.

Best væri náttúrulega að hætta að troða þessi skinn út af floti og smjörkökum og láta þau fasta duglega þar til mörin rennur af þeim. Því ég vil ekki trúa því að þetta sé það ástand sem foreldrar vilja sjá börn sín í. Ég trúi því að líkamlegt gervi þessara uppþemdu vesalinga ráðist fremur af sjúklegri væntumþykju og gnægtum þjóðfélagsins, en að þau séu í alvöru ætluð til manneldis.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182