Lesbók24.02.04 — Enter

Hvaða mjólkurblandaða bavían datt í hug að senda hæstvirtan forsætisráðherra til Úkraínu í opinbera heimsókn?

Hvurn ýlduklepraðan andskotann vilja Íslendingar þangað?

Varla ætlum við að fara að versla bensínblandin hrísgrjón og stökkbreytt hænsn þarna austan úr bakrauf siðmenningarinnar - úr þessu guðsvolaða smurolíubarbaríi.

Og hvað ættu þeir svosum að vilja frá okkur? Maltöl? Kremkex? eða kannske sýrustillandi sjampó?

Svona bitlingaklám er gersamlega yfirdrifið mínum skiningi.

Og hvað er líka verið að drösla Davíð Oddssyni þetta austur fyrir hreinlætisbaug - er Halldór ekki fullgóður í þetta skrælingjasnatt lengur?

Og eitt í viðbót!

Hvusslags þjóðníðingsháttur er það að senda sjálfastan yfirstrumpinn í kaffi, kruðerí og annað vellystingarunk í Kænugarði á sama tíma og aumir þegnar hans eru að hefja lönguföstu.

Sveiattan.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182