Lesbók03.12.03 — Númi Fannsker

Tveir lögreglumenn voru í gær dæmdir í fimm og tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ólögmætar handtökur, ranga skýrslugerð og brot í opinberu starfi, annar lögreglumannanna var einnig dæmdur fyrir að úða táragasi í andlit ranglega handtekins manns.

Þessum dómi mótmæla blessaðir mennirnir nú hástöfum og undir þann söng tekur Landssamband lögreglumanna og óttast nú lögreglumenn að geta ekki sinnt starfi sínu sem skyldi.

Þetta er merkilegt. Sannað þótti að mennirnir hefðu sagt ósatt í skýrslum um handtökurnar, ekki haft tilefni til að handtaka mennina og beitt þá ofbeldi. Er það ef til vill hluti af starfi lögreglunnar? Er það hluti af starfsöryggi lögregluþjóna að fá að krefja borgara um persónuskilríki hvenær sem þeim hentar, beita vopnavaldi gegn blásaklausu fólki (þótt það sé hávaxið), svipta það frelsinu og ljúga svo til um gang mála til að réttlæta ólögmætan verknað sinn? Vilja lögreglumenn sjálfir yfirleitt starfa við svo ólýðræðislegar aðstæður? Hvort vilja lögregluþjónar heldur í hjarta sínu - virðingu borgaranna eða ótta?

Það er óþolandi fyrir borgarana að geta átt það á hættu að vera handteknir fyrir að taka ljósmynd af lögregluþjóni. Það er óþolandi að geta verið krafinn um persónuskilríki af engu tilefni af lögreglunni hvenær sem er. Það er óþolandi að vopnuð lögregla beiti vopnum sínum gegn borgurum sem engin hætta stafar af. Við búum í lýðræðisþjóðfélagi og í slíku þjóðfélagi er óþolandi að eiga það á hættu að vera handtekinn fyrir það eitt að fara í taugarnar á lögreglunni.

Tveggja mánaða skilorðsbundinn dómur er ekki harður dómur í mínum huga sé niðurstaða Héraðsdóms réttmæt - þ.e. að sannað þyki að mennirnir hafi í raun brotið af sér á ofangreindan hátt. Fimm mánaða skilorðsbundinn dómur er það ekki heldur. Hann er í rauninni grátlega mildur.

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182