Íslensk erfðagreining. Ég rak augun í þetta íslenska fyrirtæki þegar ég var mér til gamans að glugga í verðbréfatölur.
Þetta virðist stöndugt fyrirtæki - allstórt á íslenskan mælikvarða - og hefur gengi þess vaxið töluvert á undanförnum dögum, einkum vegna stórmerkilegra uppgötvanna á sviði erfðavísinda, sem fyrirtækið virðist sérhæfa sig í.
Nú er tvímælalaust uppgangstími hjá fyrirtækinu og hvet ég því alla landsmenn til að kaupa hlutabréf í deCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar. Það gæti margborgað sig.
Auk þess virðist þessi Kári Stefánsson, forstjóri, vera nokkuð klár náungi.