Þá eru furstarnir hjá Esso búnir að hækka bensínið um tværogfimmtíu. Hvernig í andskotanum stendur nú á því? Fyrir tveimur mánuðum hækkaði bensínið um annað eins!
Skv. mbl.is "ákveður [Skeljungur] í dag hvað félagið tekur til bragðs".
Tekur til bragðs??!! Ber að skilja það svo að nú séu þeir sem öllu ráða hjá Skeljungi að pissa í buxurnar yfir því að vera nú einu sinni lægri en annað olíufélag?
Samkeppnin á ekki að snúast um hver er með hæsta verðið - apakettirnir ykkar, heldur lægsta! Í virkri samkeppni er nefnilega alltaf spilað nóló.