Lesbók10.01.03 — Myglar
Þetta ljóð samdi ég á námsárum mínum í Portúgal. Ég er ekki frá því að þá hafi ég verið bæði uppreisnargjarn og ódæll.

Undir sundrungu heimsins
er sælan hin mesta
að svindla sér ber
inn á málfund um presta

Halda þar til útí horni,
uns hermenn koma að morgni
nauðugan flytja þig nakinn á burt
nefna þig brjálæðing
útlending
surt

lemja þig sundur
og saman

"Skyldustörf eretta,
allsekkert gaman,
en gjöra verður sem Generalinn býður,
gjafmildur er hann,
næmur og blíður!"

Að morgni ert soðinn
í súpu
með síldarhrogni
úr túpu

á þér svo nærast
nauðum staddir
njóta þín illa
og hefja upp raddir

"Súpan er seltin,
mygluð og köld!
Þú situr ekki
lengur við völd!"

Generalinn svo gerður er
götóttur
hafður til sýnis
ber

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182