Lesbók25.11.10 — Enter

Hvílum sprautur gegn þágufallssýki og nýþolmyndarkveisu í bili. Hér eru fáein brýn atriði sem snerta viðgang og viðreisn íslenskrar tungu:

1. Koma íslenskum textaskrám inn á textasíður fyrir niðurhalanlegar kvikmyndir á netinu, löglegum – og helst líka ólöglegum.
2. Skikka íslensk fyrirtæki til að beygja nöfn sín. Sér í lagi ákveðin flennifyrirtæki sem eiga að skammast til að viðurkenna að heiti þeirra er í fleirtölu.
3. Skikka vefmiðla til að nota íslenska stafi í vefslóðum sínum, sbr. baggalútur.is.
4. Bjóða sérlegan magnafslátt af beygingarmyndum í vefslóðum, sbr baggalúti.is (Já, þessi viðleitni er fokdýr).
5. Leita allra leiða til að bjarga broddstöfum og séríslenskum stöfum gegnum smáskilaboða- og spjallvæðingu þjóðarinnar.
6. Finna þann sem sér um þýðingarnar á imdb.com í hvínandi hvelli og koma á hann böndum. Ég sting upp á Guðna Kolbeins í starfið.
7. Veita hárgreiðslu- og tískuvöruverslunum skattaafslátt taki þau upp íslensk nöfn.
8. Tjarga þann sem breytti merki lýsis í LYSI. Öðrum leturböðlum til varnaðar.
9. Viðurkenna og skilgreina greinarmerkjafælni sem alvarlegan smitsjúkdóm.
10. Drulluhalast til að hætta að kynna útlendingum landið okkar sem Æsland. Það heitir nefnilega Ísland.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182