Væri ekki ráð að leggja niður þessa nefnd fljótlega? Kostar þetta ekki peninga?
Ég skal svo bara sjá um að meta hvaða nöfn eru í lagi - ókeypis. Hér eru nokkur dæmi um mögulega úrskurði:
* Jón - Já, það er vissulega hefð fyrir því, þó það sé óttalega fyrirsjáanlegt.
* Hávarr - Jájá, ef þú vilt, en þú veist að það er algengara með einu r-i, er það ekki?
* Sulta - Nei og þú ættir í raun ekki að hafa leyfi til að eignast börn.