Hann hugsar
Hann bíður
Hann er ekki viss
Hann gæti misst bílinn
Litlu strákarnir eru að verða vitlausir á biðinni
Óþreyjufullir garga þeir:
"Losaðu okkur við kellinguna!
Reddaðu málunum, þetta er of niðurlægjandi!"
Hann er þó ekki viss
Hann nennir ekkert að vera lítill kall að rífast
Öll hin flúðu
Hann þurfti ekkert að gera, þau bara fóru og sögðu:
"Hann er maðurinn, ég fíla hann"
En hann er ekki viss
Hann langar samt að gera eins og pabbi
Hann hugsar
Hann bíður
Æ, vott ðe fökk
Ókei