Eftirfarandi ófögnuđur hlýtur ađ vera aumasti hortittur ortur á íslenska tungu:
Gulur, rauđur, grćnn og blár
svartur, hvítur, fjólublár
Ađ allri stuđlasetningu hjálagđri; hefđi ţađ drepiđ höfundinn ađ ríma bláan viđ gráan?
Og ekki er síđari tíma viđbótin til batnađar:
Brúnn, bleikur, banani
appelsína talandi
Hvađ í niđursođnum niđurgangi andskotans hafa bananar og talandi appelsínur međ litrófiđ ađ gera? Er ljóđmćlandi í fúlustu alvöru kominn í ţrot eftir skitna 9 liti?
Ţetta er algerlega óyfirstíganlega glatađ - og fullkomnlega óafsakanlegur glćpur gegn mannkyninu ađ hafa ţetta fyrir ćsku landsins.
Og áhugasömum til fróđleiks og áréttingar ţá rímar 'banani' engan veginn viđ 'talandi'.