Lesbók05.09.07 — Spesi

Jæja... Gott að vita að gömlu gildin eru einhvers staðar enn höfð í heiðri. Á meðan nýjungagjarnar og tískusjúkar þjóðir líkt og Íslendingar eru mestmegnis í kókaíni og methamfetamíni - jafnvel má finna stöku krakkhaus eða alsæluneytanda - situr fólk hér á bekkjum og ýmsum útidyratröppum (meðal annars við hliðina á hótelinu mínu rétt hjá aðal göngugötunni) og blandar sér hressandi heróínskammt í morgunsárið.

Og hreinar sprautur eru fríar - koma barasta með sprautubílnum svokallaða, svo blessaðir dópistarnir séu ekki að smita hvorn annan af lifrarbólgu eða einhverju ámóta. Þeir eru þrifalegir, Norðmennirnir.

Svo gat ég ekki betur séð en að Pete Doherty væri sprauta sig á Karl Johann fyrr í dag, sem er náttúrulega mikil lyftistöng fyrir ferðamannaiðnaðinn.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182