Dæmigert! Það er ekki fyrr búið að opna síðuna aftur en hinir í ritstjórninni ákveða að senda mig í „rannsóknarleiðangur“ til Noregs!
Hér á ég að dúsa megnið af vikunni og skila af mér skýrslu í lok hennar um hinn dæmigerða norska lúða. Nóg er reyndar til af þeim hérna, svo ekki skortir mig viðfangsefnin, en ég er bara mest hræddur um að þetta sé smitandi...