Þetta virkar alveg eins og fullyrðingamótið, nema hér eru engar fullyrðingar, bara öfugmæli.
Ég byrja.
Kálið æpir Kynjólf á.
Kálið æpir Kynjólf á.
Kráka reynist oftast grá.
Kálið æpir Kynjólf á.
Kráka reynist oftast grá.
Selir jafnan segja mjá.
Kálið æpir Kynjólf á.
Kráka reynist oftast grá.
Selir jafnan segja mjá.
Sítrónan er oftast þrá.
Þetta virkar alveg eins og fullyrðingamótið, nema hér eru engar fullyrðingar, bara öfugmæli.
Eru öfugmælavísur ekki oftast stútfullar af fullyrðingum?
Fæstir dónar fleygja sér.
Fæstir dónar „fleygja sér“.
flestir gestir þegja hér
Fæstir dónar „fleygja sér“.
Flestir gestir þegja hér.
Þátíðin af "tjá" er "tér".
Fæstir dónar „fleygja sér“.
Flestir gestir þegja hér.
Þátíðin af "tjá" er "tér".
Þarfi kann að haga sér.
Oft er sól í vatni væn.
Vinstri hreyfing ekki er græn.
Oft er sól í vatni væn.
Vinstri hreyfing ekki er græn.
hvurslags gjarnan biður bæn.
Oft er sól í vatni væn.
Vinstri hreyfing ekki er græn.
hvurslags gjarnan biður bæn.
Brúnka er á ensku tæn.
Kusa hneggjar , kisi hlær.
Karlmenn hafa fjórtán tær.
Kusa hneggjar , kisi hlær.
Karlmenn hafa fjórtán tær.
Hafnarfjörður brilljant bær.
Kusa hneggjar , kisi hlær.
Karlmenn hafa fjórtán tær.
Hafnarfjörður brilljant bær.
Börn sem gráta eru vær.
Grikkir kusu konur helst.
Kex er hægt að rota