Að vera of breyttur.
Hvað er verra en að missa af uppáhaldssjónvarpsþættinum sínum?
Að fá upplýsingar um endalok uppáhalds sjónvarpsþáttar síns, 2 vikum áður en þátturinn er sýndur.
Hvað er verra en að vera með sand í rassaskorunni?
Að vera með hraunmola í rassborunni.
Hvað er verra en þegar ungabarnið manns kúkar uppá bak langt frá byggðu bóli?
Krabbamein.
Hvað er verra enað verða í öðru sæti á ólympiuleikunum?
Að þurfa að standa.
Hvað er verra en vegurinn milli Ásbyrgis og Hljóðakletta?
Vegurinn suður Kjöl.
Hvað er verra en að að sé að skrælna úr þurrki?
Að drukkna í eigin millifrumuvökva.
Hvað er verra en svæsin flenza?
Að fótbrotna á báðum.
Hvað er verra en að taka upp kartöflur í rigningu?
Taka upp rigningu í kartöflum...
Hvað er verra en að vera vitlaus?
Vera vitlaus og vita ekki af því.
Hvað er verra en að búa í borg óttans?
Samkvæmt íbúaþróun er mun verra að búa á Raufarhöfn.
Hvað verra en að vinna allt of mikið?
Vera atvinnulaus
Hvað er verra en Yoko Ono á tónleikum?
John Lennon á tónleikum (í nútímanum )
Hvað er verra en piiraður viðskiptavinur með banana í eyrunum sem hringir inn og kvartar.
Símadama sem rífur kjaft.
Hvað er verra en að það skuli ekki vera nema 24 tímar í sólarhringnum og að maður sé upptekinn 29 af þeim?
7 tímar í sólarhingnum
Hvað er verra en jólaauglýsingar í september?
Þegar köttur nágrannans skítur í sturtuna manns.
Hvað er verra en félagsritaritunarnennuskortur?
Félagsritunnarræpa á lélegum félagsritum.
Hvað er verra en ég að stafsetja?