Fólin og tárið...
ég meina, hjólin og hárið...
nei nei...
Jólin og Árið!
Árin og jólið
Ég elska jólin. Alveg 356 dagar í næstu jól. Ljómar upp
Gleðileg fól jólin ykkar.
Sendi Gestapóum nær og fjær bestu jólakveðjur og heimta að þið hafið það sem best um jólin, sem og um ókomna framtíð.
Grágrímur
Það sem hann sagði...
Það er þessi tími aftur...
۞۩۞۩۞۩۞۩۞۩۞۩۞۩۞۩۞۩ Gleðilegt jól. ۩۞۩۞۩۞۩۞۩۞۩۞۩۞۩۞۩۞
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer óskum öllum gestum hjer gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þó er frá þessu sú undantekning að ef óvinir ríkisins leynast hjer fá þeir eigi svona kveðju nema með ótal fyrirvörum auk þess sem vjer minnum á að listinn ógurlegi yfir þá er í tryggum höndum vorum.
Forseti vor er svokallaður óvinalistamaður.
Gleðileg jól kútarnir mínir, megi súkkulaðið leka í taumum niður á spariklæddar ístrur og blúndubyrgða barma Gestapóa og -pía nær og fjær. Þess óskar af heilum hug ykkar Anna Panna Pottfjörð.
Til hamingju með hátíð ljóss og friðar,
hjartans gestapóar nær og fjær.
Af kjötsvima nú kattarskarnið riðar,
því kýlda vömbin lafir niðrá tær.
Gleðileg fól jólin ykkar.
Endurtekð efni.
Ég hin yndislegi stórsnillingur og mín undurfagra og hjartgóða Næturdrottning sendum ykkur sem enn hér tóra okkar bestu jóla og nýárskveðjur.
Sendi Gestapóum nær og fjær bestu jólakveðjur og heimta að þið hafið það sem best um jólin, sem og um ókomna framtíð.
Grágrímur
Það sem hann sagði...
Það er þessi tími aftur...
Og aftur...
Gleðilegt jólið.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að innlegg þetta er formleg jólakveðja til gestanna hjer, þó að óvinum ríkisins undanskildum.
Er ekki best að klára bara jólakveðjurnar 2018 fyrirfram?
Gleðileg jól dúllubossar.
Vjer erum EIGI dúllubossi!