Ég færi Bagglýtingum öllum nær og fjær, til sjávar og sveita, okkar hugheilustu jólakveðjur héðan af Huxasetrinu. Megi framtíðin brosa við ykkur og fortíðin lýsa í ljúfri minningu.
Við turtildúfurnar sendum öllum Bagglýtingum á öllum lífstjörnum okkar bestu óskir um góð og falleg jól og hagsæld á nýju ári.
Sendi ykkur öllum hugheilar millijólaognýárskveðjur, hvort sem er til sjávar eða sveita. Óska ykkur gleðilegrar jólarestar og gæfuríks komandi árs. Þakka öllum sem hafa glatt mig hér á Gestapóinu í gegnum árin.
Vona að þið gerið ekki neitt um hátíðarnar sem ég mundi ekki gera.
Gleðilega rest krúttin mín!
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer óskum öllum gleðilegra jóla (þó örlítið seint sje; tímavjelin bilaði) nema þeim sem eru á listanum ógurlega yfir óvini ríkisins. Vegna þess að sá listi er ríkisleyndarmál er því miður strangt til tekið ómögulegt fyrir þá/þær/þau er þetta að lesa að vita hvort þeir/þær/þau eru í hópi þeirra er fá jólakveðjur (þó margir lesendur þessa innleggs ættu reyndar að geta verið vissir um hvort þeir eru á listanum eður ei).
Mig langar að óska öllum Gestapóum sem hættir eru að láta sjá sig hérna inni gleðilegra jóla. Einnig fá þeir sem hugsanlega eiga eftir að flytjast hingað jólakveðju.
Bestu kvikindiskveðjur til ykkar allra á sólstöðuhátíðinni sem leið en bestu óskir á komandi ári. Takk fyrir hin árin. Áramótakveðja og mikið af flugeldum (þ.e.a.s. sprengjum) til styrktar ti hinnar frábæru baggalútísku hljóm- og björgunarsveitar. Kv.MK
Sendi Gestapóum nær og fjær bestu jólakveðjur og heimta að þið hafið það sem best um jólin, sem og um ókomna framtíð.
Grágrímur
Það sem hann sagði...
Jólin!
Gleðileg jól!
Sendi Gestapóum nær og fjær bestu jólakveðjur og heimta að þið hafið það sem best um jólin, sem og um ókomna framtíð.
Grágrímur
Það sem hann sagði...
Það sem þeir sögðu.
Billi bilaði
Gleðileg jól englabossar!
Gleðilega hátíð elsku krúsídúllurinar mínar.
GLEÐILEG JÓL! gleðileg jól!
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer óskum þeim Gestapóum (og jafnvel einhverjum öðrum líka ef þannig vill til) er þetta kunna að lesa gleðilegra jóla og farsæls komandi árs; eru óvinir ríkisins þó undanþegnir kveðju þessari nú í ár.