Hvíslar að Regínu Þú getur til dæmis kannski séð á nokkrum þráðum hvað ég á það til að gera við kakósleifina þegar mér rennur í skap
Hvíslar að Regínu Þú getur til dæmis kannski séð á nokkrum þráðum hvað ég á það til að ger við kakósleifina þegar mér rennur í skap
Leitar að sleif, kakósleif, sleifinni, kakósleifarinnar og öðrum svipuðun orðum og áttar sig á alvöru málsins. Veltir því fyrir sig hver hafi verið svona vondur við Hexiu að hún hafi þurft að verja sig með sleifinni.
Regína mín, því miður get ég ekki sýnt þér hina mörgu möguleika kakósleifarinnar. Ástæðan er sú að það er eilífðar árshátíðarbann á sleifum (nema til kakógerðar) eftir árshátíðina 2005.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ooo það var nú ekki bara Hexia sem beitti sleifinni.
Sleifin atarna barst á milli manna eins og eldur í sinu.
Grafíska lýsingu á þessu má sjá hér.
Veit ekki hvort hún á að gleðjast eða syrgja yfir því að hafa misst af hinni stórkostlegu árshátið 2005.
Ég vil ekkert mafíuþema, ég á ekkert svart, hvað þá vindil! Ég vil krúttlega þemað aftur!
Ég mæli með því að Aulinn verði fórnarlamb mafíunnar. Hún getur þá mætt krúttleg, en dauð. Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Á ekki að fara að opinbera hvar þessi árshátíð verður haldin, eða er það kannski búið að koma fram einhvers staðar? Klórar sér í höfðinu
Nú, í Raunheimum. Hefurðu ekkert verið að fylgjast með? Glottir við tönn
Sýndarveruleikinn í sinni tærustu mynd... ég vil þó ítreka að þið verðið að fara varlega í þessum raunheimi... ég þekki nokkra sem hafa alldrei komið til baka...
Ég man eftir Smábagga til dæmis. Signir sig
Enda förum við ekki sjálf... ég er búin að semja við leikarann minn.
Þetta er rétti andinn... það er alldrei of varlega farið... hugsar til skrumgleypisins með hrolli
Nú, í Raunheimum. Hefurðu ekkert verið að fylgjast með? Glottir við tönn
Raunheimum númer hvað ?
42 (þ.e. ef það er eitthvert númer)
Einmitt.. já... ég er bara ekki alveg viss um í hvaða póstnúmeri þeir eru.
Mafíuþemað er raunhæfara en krúttþemað. Það eru meiri líkur á því að fólk geti vatnsgreitt sér en að fást til þess að klæðast bleiku.
Það fer eftir því hvað felst í mafíuþemanu. Vindla (og annað) neitum vjer alfarið að reykja og enn frekar neitum vjer að ganga frá einhverjum gestum í skjóli nætur. Hvað á annars að taka hugsanlegt þema bókstaflega ?