Jæja, árshátíðarumræðan hefur poppað upp á nokkrum þráðum, eigum við ekki bara að taka þetta föstum tökum og ræða þetta mál?!
Aðalspurningarnar eru þessar:
a) Er almennur áhugi fyrir því að halda árshátíð?
b) Hafa einhverjir góðir gestapóar sértækan áhuga á því að vera í árshátíðarnefnd?
Og já, kannski best að taka það fram að a) ég hef áhuga á að halda árshátíð og b) ég var í nefnd í fyrra og er til í að vera nýrri nefnd innan handar með hugmyndir og fleira en ég hef lítinn tíma til að sinna almennri skipulagningu.
Ég hef áhuga á árshátíð og áhuga á að vera í árshátíðarnefnd en ég hef því miður hreint engan tíma til að standa í skipulagningu... ég get mætt og skemmt mér eina kvöldstund og hugsanlega verið með eitthvað smá skemmtiatriði. Svo er það að ef ég kem að einhverri skipulagningu þá klúðrast það alltaf.
Ég hef áhuga á árshátíð, og hugsanlega að sjá um að skipuleggja hana. Legg ég þá til að í þetta skipti verði ekki matur. Það var mjög fínt að hafa mat í fyrra, en hins vegar mikið umstang og kostnaður við það.
Koma Gestapóar hvort eð er ekki aðallega á svona viðburði til að drekka áfengi? Glottir eins og fífl
Spurning um að kanna hversu margir vilji fara út að borða saman og hittast svo allir á árshátíð.
Ég vil ássháttíð!
Það sem vantar er reddingafólk með kontakta. Hver á frænda sem á stóran bílskúr?
Mig langar á Árshátíð Hún þarf ekkert að vera fín baraPizzur og bjór nægir mér og svo að sjálfsögð einhver frumsamin skemmtiatriði og smá teningaborð fyrir okkur Herbjörn.
Ég er alveg til í árshátíð. Panta snittur og sérrí, vera með afskaplega dönnuð gamanmál, bjóða upp á konfekt og kavíar, síðan verður klykkt út með gömlu dönsunum og harmonnikkufélaginu alveg langt frameftir. Jafnvel til klukkan 9 á laugardagskvöldi ef mikil stemmning er í mannskapnum. Ljómar upp og fær sér ristað brauð með sultu
Árshátíð!? Fölnar upp Þýðir það að maður þarf að horfast í augu við aðra Gestpóa eftir að maður er búinn að gera sig að fífli hér í Baggalútíu? Fær nett kvíðakast og skríður bak við skáp.
Segðu!
Verður hún fyrir 15. desember? Því þá verð ég ekki kominn heim! brestur í óstöðvandi grát
Verður hagyrðingamót?
Þá mætum við örugglega! Er þaggi? Ljómar vongóður upp
Ég er alveg til í árshátíð. Panta snittur og sérrí, vera með afskaplega dönnuð gamanmál, bjóða upp á konfekt og kavíar, síðan verður klykkt út með gömlu dönsunum og harmonnikkufélaginu alveg langt frameftir. Jafnvel til klukkan 9 á laugardagskvöldi ef mikil stemmning er í mannskapnum. Ljómar upp og fær sér ristað brauð með sultu
Og byrja hvenær? Á fimmtudagskvöldinu? Ljómar upp[/s]
Árshátíð!? Fölnar upp Þýðir það að maður þarf að horfast í augu við aðra Gestpóa eftir að maður er búinn að gera sig að fífli hér í Baggalútíu? Fær nett kvíðakast og skríður bak við skáp.
Segðu!
Nei, þetta er allt í lagi. Árshátíðin verður haldin í raunheimum sem eru auðvitað ekki til svo það þarf enginn að horfa í augun á neinum og allir geta haldið áfram að vera glaðir á Gestapó!
Verður hagyrðingamót?
Þá mætum við örugglega! Er þaggi? Ljómar vongóður upp
Af hverju bjóðið þið ykkur bara ekki fram í nefnd, þá getið þið gert það sem þið viljið!
Ég hef mikinn áhuga á að mæta á svona skemmtun. En ég hef hvorki tíma né hæfileika til að skipuleggja neitt og set því ekki fram neinar kröfur heldur.
Árshátíð!? Fölnar upp Þýðir það að maður þarf að horfast í augu við aðra Gestpóa eftir að maður er búinn að gera sig að fífli hér í Baggalútíu? Fær nett kvíðakast og skríður bak við skáp.
Segðu!
Nei, þetta er allt í lagi. Árshátíðin verður haldin í raunheimum sem eru auðvitað ekki til svo það þarf enginn að horfa í augun á neinum og allir geta haldið áfram að vera glaðir á Gestapó!
Rekur nefið undan skápnum Þetta er of flókið fyrir mig. Hvernig er hægt að halda árshátíð á stað sem ekki er til?
a) Já!
b) Ég gef ekki kost á mér í nefnd sökum almenns tímaskorts tilkomnum af mikilli vinnu en ég ætla samt að setja fram kröfu á þá sem verða í nefnd.
Að mínu mati er það alger lágmarkskrafa að boðið verði upp á ákavíti á árshátíð Baggalúts.