Mér hafði borist af því njósn að vegna hógífis og velsældar væru yfirvöld Baggalútíu steinsofandi á verðinum gagnvart huxanlegu valdaráni. Því hefi ég huxað mér að laumupúkast hingað inn til að ná hér öllum völdum og gerast einræðisherra BaggalútíuStyður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er Það verður gert með fagurgala og undirboðum á hinum ýmsustu sviðum s.s. kóbalti og ákavíti
Það er ekki eftir neinu að bíða, - teningunum er kastað..
Það er tilgangslaust fyrir þig að Kasta teningum í okkur Herbjörn hér. Við svörum fyrir okkur og gerum miklu betur.
Hérna... Veit ekki alveg hvað hann á að gera Ég held að Offari hafi klárað þetta...
Hendir ákavíti upp í loftið, allt ver í slowmó og sér Skrabba hendast á eftir enn missir og lendir á gólfinu og blóð seitlar úr nefinu hans á meðan Ákavítið lendið á ljósinu ogg allt rafmagnið fer af nema að Ákavítið fer að lýsa staðinn upp og læknar Skrabba
Klórar sér í höfðinu
Já, já, ljúfurinn minn, ég á ákavíti í tunnuvís á niðursetninga verði. Væri alveg til í að bjóða væntanlegum fylgis- og undirmönnum mínum smakk.xT
Er huxanlegt að Offari hafi fitlað við teningana,- mínir teningar virka ekki svona vel..Klórar sér í höfðinu
Hvar er þessi Bagalútía Híar á innsláttarvillupúkann
Skemmdarverk Innsláttarvillupúkinn var búinn að fá fullt af Ákavíti til að vera með mér í liði og sjá... Svíkur mig og lit og allt í fyrsta orði
En hvernig er það, ætlar enginn að bjóða mig velkominn eftir þessa fínu kynningu mína á mér og mínum göfugu markmiðum.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann Ég hélt að það væru allir glaðir að heyra af áformum mínum um nýja og fagra veröld...Brestur í óstöðvandi grát
Velkominn Uxi og gangi þér mjög mjög vel.
Það tilkynnist hér með opinberlega að prentvillupúkinn var ekki á ferðinni í þessu innleggi
Og Offari hver er nú meistari teninganna.Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Frábært hjá þér Uppi nú ert búinn að gjörsigra Uxann.Ljómar upp
Þakka innilega ljúfar móttökur Uppi, þú gætir orðið kynningar- og áróðursmálameistari minn í ráðuneyti mínu. Í ráðuneyti mínu verða bara meistarar, ekki ráðherrar. Það er eitthvað svo mikið 1900 og eitthvað....Ljómar upp
Sækir snjáðu skjalatöskuna og bunka af pappírum með afar smáu letriÞað er líkast til rétt að bjóða þér upp á Valdaránstryggingu, Stjórntryggingu og Árangurstengda Árangurstryggingu. Tekur upp bunka af blöðum Þú fyllir þessi form einfaldlega út í tólfriti og skilar þeim til Tryggingaráðuneytisins.
Ég þarf varla að útlista fyrir jafn gáfaðan og kláran mann eins og þig um nauðsyn þess að hafa góðar tryggingar á bak við sig þegar um svona stóra framkvæmd er að ræða, er það nokkuð ? Réttir Uxanum kúlupenna merktum ráðuneytinu
Hver árinn. Þarna voru nú einhver brögð í tafli, Upprifinn!
Nei Þarfi minn hér er engum brögðum beitt.
ég einfaldlega varð að fá tvær sexur og þá komu tvær sexurGefur frá sér vellíðunarstunu