Frétt sem aldrei á eftir að heyrast
Staðfest var í hæstarétti mál yfir 6000 maurum sem rændu veitingastaðinn Núðluhúsið við Vitastíg með því að dulbúa sig sem hrísgrjón...
Næst á dagskrá sjónvarpsins er klassísk, bandarísk bíómynd frá áttunda áratugnum sem nefnist Debbie does Dallas, eða Dagnýju dreymir um Dallas eins og hún kallast á íslensku.
Þó svo að mikill árangur hafi náðst á þessu sviði undanfarin ár, þá er það minnst okkur í Sjálfssóknarflokknum að þakka. Það er fólkið í landinu sem á heiðurinn.
Og á hinn bóginn:
Þessi afglöp eru alfarið okkur í Sjálfssóknarflokknum að kenna. Við tökum fulla ábyrgð og lofum að gera betur næst.
Landsbankinn fellir niður alla vexti á útlánum.
Kaupþing ákveður að hagnaður síðasta mánaðar renni óskiptur til viðskiptavina bankans..,.
Þú ert svo frábær starfskraftur að ég ætla að tvöfalda launin þín.
Hot Spot er nafn sem passar vel á Gestapó.
"Vegna velgengni kommúnismans síðustu ára hefur ríkisstjórnin ákveðið að fella niður notkun á pening í landinu. Hér eftir mun hagkerfið einungis byggja á trausti landsmanna og dugnaði atvinnulífsins."
Karlmaður:
Æ Elskan ertu ekki að verða búin að ljúka þér af?
Þessa setning mun næst heyrast í kvöldfréttatíma þann 12. maí:
"Formenn stjórnmálaflokkana tóku daginn snemma og voru mættir á kjörstað strax upp úr 9:00"
Borgarleikhúsið setur í sumar upp söngleik byggðan á Flokkunarkerfi Deweys...
(ég færi á frumsýninguna)
Þjóðleikhúsið hyggst svara söngleik Borgarleikhússins með því að setja upp söngleik sem byggður er á Símaskránni 2006.
Karlmenn mótmæla kynjamisrétti og eru farnir í kynlífsverkfall!
Sökum klukkutíma seinkunar fá allir flugfarþegar endurgreitt. Við biðjumst velvirðingar á á óþægindunum, og bjóðum farþegum að gæða sér á heitum réttum af matseðli Saga Class á meðan beðið er. Allir drykkir eru í boði flugfélagsins.
Luke, ég er mamma þín
Ég ætla að fá eina með sinnep, tómatssósu, steiktum og rabbabarasultu.
Ég ætla að fá hjá þér eitt stykki alnæmi með flatlús og svo máttu endilega láta inflúensu fylgja því.