Haha... getur ekki bara sá fangi sem að fór inn í herbergið staðhæft að hann hafi verið þar?
Það er alltaf eitthvað ...
Ef sami fanginn kemur í herbergið tvö kvöld í röð þá má hann ekki giska. Mjög góð tilraun samt ...
Jæja - ætli ég hendi ekki bara fram framhaldi þessarar þrautar?
Fangarnir náðu loksins að sleppa úr fangelsinu, en fetuðu því miður strax glæpabrautina aftur og lentu aftur í sama fangelsi. Fangavörðurinn ákveður að leggja nýja þraut fyrir þá. Fyrirkomulagið er nákvæmlega hið sama - herbergið með ljósaperunni; einn fangi valinn af handahófi á hverju kvöldi; hann má kveikja eða slökkva á perunni að vild.
Hins vegar er þrautin sú í þetta sinn, að hvenær sem er má einhver fanganna staðhæfa að hann viti fyrir víst hver kom í herbergið kvöldið áður. Ef það reynist rétt hjá honum er föngunum aftur veitt frelsi. Ef það er rangt eru þeir allir drepnir.
Sem og í fyrra skiptið fá fangarnir að hittast kvöldið áður en þrautin hefst til að koma sér saman um áætlun. Hvernig geta þeir leyst þrautina?
Þessi virðist einfaldari en möguleg lausn er á svipuðum nótum:
Fangarnir númera sig frá 1..N og dagana frá 1..N aftur og aftur (þ.e. dagur N+1 = 1). Fangi i má aðeins kveikja ljósið á degi i - annars skal ljósið vera slökkt. Þegar fangi kemur inn á degi i+1 og ljósið er kveikt, veit hann að fangi i var í klefanum daginn áður.
Kórrétt lausn! Já, hún er líklega einfaldari þessi, en engu að síður skemmtileg.
Ekki spurning. Vonandi kemur einhver með nýja þraut hérna bráðlega. Þessi þráður er nauðsynlegur.
Rétt er það. Hér er ein sem Bangsímon skaut að mér áðan. Hann hefur því miður ekki aðgang að Baggalúti í vinnunni (bölvaðir netsíufasistar), þannig að ég hendi þessu bara inn fyrir hann:
4 5 6 7 8 9
61 52 63 94 46 ??
Hvað kemur næst?
Þetta er nú ekki svo erfitt, er það nokkuð?
Ég skil ekki alveg uppsetninguna ... eru þetta tölur númer 4 - 9 af runu eða myndar efri línan hluta af verkefninu?
4 5 6 7 8 9
61 52 63 94 46 ??
Það má svara þessu þannig að tölurnar í neðri línunni eru myndaðar út frá tölunum í efri línunni, þannig að já, í raun má segja að fyrri túlkun þín sé rétt.
Doh!!!
4^2 = 16, snúa við = 61
5^2 = 25, snúa við = 52
.
.
.
9^2 = 81, snúa við = 18
Rétta svarið : 18
Náttúrulega. Ljómar upp
Þetta er skemtilegur þráður! Hér kemur ein þraut:
Gerum fyrst ráð fyrir því að Hugsjónamenn segi alltaf satt og að tækifærissinnar ljúgi alltaf. Svo gef ég ykkur eftirfarandi upplýsingar.
Magnús þór segir að Ingibjörg Sólrún gæti sagt að Björn Bjarnason væri hugsjónamaður. Björn Bjarnason segir: "Ég og Steingrímur J. eigum ekkert sameiginlegt". Siv Friðleifsdóttir segir að Steingrímur J. sé tækifærissinni. Steingrímur J. Segir: "eitt af eftirtöldu er rétt: ég er hugsjónamaður eða Ingibjörg Sólrún er tækifærissinni". Ingibjörg Sólrún segir að annaðhvort sé Magnús Þór tækifærissinni eða Björn Bjarnason.
Hver er tækifærissinni og hver er hugsjónamaður?
Ég er viss um að hægt er að segja til um niðurstöðuna á tvo vegu:
Með því að leysa gátuna... eða:
Með því að fletta upp IP-tölunni þinni og komast að því hvar þú átt heima og hverjir vinir og vandamenn eru og ræna svo einhverjum nákomnum þér og pynta þá til sagna um það hvaða flokk þú kýst yfirleitt.
Ég er náttúrulega fylgjandi seinni aðferðafræðinni enda rökhyggjumaður.
Hugsjónamaðurinn... hmmm Vladimir Fuckov í baráttunni við óvini ríkisins.
Tækifærissinninn.... ekki gott að segja. Ljómar upp Við öll líklega erum alltaf að grípa hin og þessi tækifæri.
Kisi, þú þarft að útskýra betur hvað þessi setning þýðir:
Ingibjörg Sólrún segir að annaðhvort sé Magnús Þór tækifærissinni eða Björn Bjarnason.
Þýðir þetta að hún segi að einungis annar þeirra sé tækifærissinni, eða að hún segi að annar hvor þeirra eða báðir séu tækifærissinnar ('exclusive' eða 'inclusive' OR)?
Annars sé ég núna að það hlýtur að vera að hér sé átt við 'inclusive' OR, því annars kemur engin uppröðun til greina.
Ég fæ út að:
Björn Bjarnason er tækifærissinni.
Ingibjörg Sólrún er hugsjónamaður.
Magnús Þór er tækifærissinni.
Siv Friðleifsdóttir er hugsjónamaður.
Steingrímur J. er tækifærissinni.
Með þessu gengur allt upp, að því gefnu að Ingibjörg eigi við að bæði Björn og Magnús gætu verið tækifærissinnar.
Ég leysti þetta með því að setja alla möguleikana upp í fylki, þar sem 0 táknaði tækifærissinna og 1 táknaði hugsjónamann. Svo beitti ég einni reglu í einu til að þurrka út línur sem ekki komu til greina út frá þeirri reglu.
Þarfagreinir hefur að sjálfsögðu rétt fyrir sér. Það er líklega mun fljótlegra að setja þetta upp í töflu heldur en að leysa þetta í huganum. Ingibjörg Sólrún hefði sjálfsagt geta orðað hlutina aðeins betur. En síðan hvenær hafa stjórnmálamenn talað ótvírætt...
Blástakkur: Þetta var góð tilraun hjá þér en hún virkaði því miður ekki. Þú mátt gjarnan halda henni tengdarmömmu hjá þér sem lengst. Ég vona að þú munir eiga með henni ánægjulegri stundir en ég hef haft hingað til.