Og heldur þú að þetta komi Kambsráninu eitthvað við?
Var það gullkambur?
Var það ekki frekar hunangskambur?
Var yfirleitt um kamb að ræða í Kambsráninu?
Var ekki meira um þamb þar?
Nú, var Hjörtur bóndi ölkær?
Var ekki sagt að hann bruggaði meira en nágrannarnir?
Græddi hann eitthvað á þessu?
Drakk hann það allt sjálfur?
Var þetta þá aðeins til heimabrúks?
Gaf hann samt ekki með sér?
Var Hjörtur þekktur að gjafmildi?
Hafði hann ekki vott af gestrisni, samt?
Er gestrisni Flóamanna ofmetin?
Fer það ekki af því hvað margar flær eru að bíta þá hverju sinni?
Eru Flóamenn almennt á flótta undan flóabitum?
Eru Flóabitar og Æðibitar svipaðir á bragðið?