Eru þeir ekki búnir að missa af sjávarútvegssýngunni?Fær áfengisblik í auga
Komstu ekki í básinn hjá Skaganum td?
Af hverju ætti múkki að skoða sjávarútvegssýninguna á hvolfi?
Voru ekki flestir á hvolfi þar?Hrukkar ennið og reynir að muna
Ég fór ekki á básinn hjá Skaganum. Hvað var sýnt þar?
Sjálfvirkir plötufrystar fyrir lausfrystan uppsjávarfisk - þe tækin pressa ekki og fiskurinn frýs aðeins frá einni hlið. Nýtingin eftir uppþýðingu er betri en úr blásturfrystum. Skoðaðir þú allt í gegn um flöskubotn?Glottir óspart
Voru flöskubotnar til reiðu til að skoða gegnum?
Er einhverntímann hörgull á þeim?Tyggur hökuskeggið
Er hörgull öðruvísi en venjulegt gull?
Er það kannske einhver sifjarhaddur?
Er ómissandi samskonar orð og óbrjótanlegt?
Má setja fleiri en eitt ó fyrir framan orð og heldur þá merking þeirra áfram að snúast við?
Meinarðu eins og óómissandi semværi eitthvað sem hægt er að missa?
Fer landsbyggðarfólk ekki líka í óóbyggðaferðir?
Er þá um að ræða vöntun á vitsmunaleysisskorti?