Sækir að mér eitthvað dott,
ég ætti að fara að sofa.
Þetta er orðið ansi gott.
Ykkar kveðskap lofa.
Ég legg til að hæstvirtur gestgjafi, Blöndungur, hljóti hrós í hnappagat fyrir skemmtileg yrkisefni & frábært framlag. Skál ! xT
Þakkarvert var þetta mót.
Þig ég, Blöndi, hylli
fyrir vísnavinahót
& valinkunna snilli.
Tek undir það - þetta var skemmtilegt mót og frábær yrkisefni.
Mótshaldarann mærum
mjög, með blúti kærum.
Blönda, þar til bærum,
bestu þakkir færum. xT
Jæja, hvenær er svo næsta mót?? Glottir eins og fífl
Já, hvað var það, Skabbi minn?
Ég var bara að bölva tölfræðinni... ég hefði rokið upp listan yfir mætingu ef ég hefði mætt...
Ég get örugglega reddað því einhvern veginn.
Rétt er það... það má alltaf teygja tölfræðina... Safnar saman í krukku nokkrar litlar mútur
ég er enn næst hæstur er það ekki?
Nei, þú ert æst kæstur...
Hefur ekkert komið til tals að hafa hagyrðingamót?
Nei, vilt þú ekki bara ákveða hver er næstur?
Er ekki rétt að ræða málin aðeins?
Hver vill taka það að sér?
Hér hefur ekki verið meira en einni hagyrðingur innskráður í senn síðan fyrir páska, yfirleitt Lappi. Legg til að hann sjái um dæmið.
Hér hefur ekki verið meira en einni hagyrðingur innskráður í senn síðan fyrir páska, yfirleitt Lappi. Legg til að hann sjái um dæmið.
mæli með því.
Ha? Er lappi að fara að halda hagyrðingamót? Ljómar upp