Segi það sama.
Ég fór í vikutúr á sjóinn og missti þar af leiðandi af síðasta móti.
Ha, á sjónum? Voruð þið ekki með internet um borð eða voru það kannski bara þorskanet?
Hlær eins og vitleysingur
Var þetta ekki fyndið hjá mér?
Engin net hvorki inter- né þorsk- Lögðum bara línurnar (flissar og frussar eins og kerling)Ste[s]Ljómar upp
Tekur bakföll af hlátri. Góður!
Engin net hvorki inter- né þorsk- Lögðum bara línurnar (flissar og frussar eins og kerling)Ste[s]Ljómar upp
Vantar nokkuð mannskap? Ef þið leggið þá skal ég draga.
Ég er þrælvanur öllum veiðum. Ef þið skiptið yfir á troll og það kemur upp í henglum, þá fer ég hamförum með nálina.
Já hvernig væri að einhver fari að dæla inn tilkynningu um hagyrðingamót... Vímus og Maribo, ég skal koma með ykkur á sjóinn, ef ykkur vantar mann...
Ég fór sem afleysingamaður sjálfur og hef varla migið í saltan sjó áður. Mér var nú samt boðinn annar túr rétt fyrir næstu mánaðarmót.
Jæja er enginn vilji fyrir hagyrðingamóti? Á ekki Heiðglyrnir að velja næsta?
Skrumskælt frá Flosa Ólafs.
Ef mæti ég hýrum hagyrðing
í hörkustuði.
Ég kom’onum vil á kvæðaþing
að kljást við guði.
Offari hefur lokið stjórnun á sínu fyrsta hagyrðingamóti mótið var frekar fámennt en samt góðmennt samt hefðu fleiri mátt mæta en þetta hitti reynda illa á hjá mér þar sem ég fer í Þingeyjarsýsluna á morgun til að dæla í mig almennilegu lofti þurtfi ég að halda mótið í kvöld á Þriðjudagskvöldi þegar flestir nota Sunnu eða mánudagskvöld, vonandi verður fjölmennara á næsta móti þar sem okkar efnilegasti nýgræðingur að öðrum ólöstuðum Billi bilaði stýrir. takk fyrir.
Alltaf missum mér af þessum hagyrðingamótum og er það miður. Er nokkur leið að tímasetja þau þannig að þau rekist ekki frímúrarafundi?
Örugglega en þá rekast þau á við AA fundi og þá kemst enginn.
Ég mæli með sunnudagskvöldum kl. 22:00
Alltaf missum mér af þessum hagyrðingamótum og er það miður. Er nokkur leið að tímasetja þau þannig að þau rekist ekki frímúrarafundi?
Vissulega er allt hægt í þessum heimi og vonandi tekst að hitta á þinn tíma hér Riddarinn bað mig um að taka þetta að mér á sunnudaginn síðasta og mér fannst sólarhringur of stuttur fyrirvari hinnsvegar feh ég sagt mig ú öllum þeim klúbbum sem hindra starf mitt hér á gestapó. Frímúrarareglunni má allveg sleppa fyrir Gesatapó.
Ég mæli með sunnudagskvöldum kl. 22:00
Það er óvíst að ég verði kominn heim næsta Sunnudagskvöld.
Ehem,
Rís upp í fulla stærð
Sunnudags- og mánudagskvöld eru jafngóð fyrir mig að stjórna.
Hér vil ég því að menn leggi inn S eða M (eða jafnvel SM ef það misskilst ekki) til að gefa til kynna hvort kvöldið hentar betur fyrir frjósemi (huga).
Þegar líður á vikuna mun ég telja saman, hvort skáld vor séu meira fyrir S eða M (eða SM), og senda út staðfesta tilkynningu um mót (með yrkisefnum).
Andar frá sér og fellur saman í eðlilega stærð
Ef þið viljið um það hafa
eitthvað nú að segja,
hvaða kvöld við skulum skrafa,
skal nú enginn þegja.