Blókin reyndi að braska með
bokkur illa fengnar.
Það lögreglunar gladdi geð
að góma svona skoplegt peð.
Peðin falla frekar hratt
er fara þau upp borðið.
En kónginn víst það getur glatt
að giftast fleirum, það er satt.
Satt ég verð að segja þér,
þó sjaldan það ég iðki.
Gott mér þykir gæðasmér
ef gellur saltar et eg hér..
Hér ég sit og sulla í
sénever og blandi.
Það er gott að fara í frí
með frúnni stunda bríarí.
Í bríaríi er bruggað vín.
Brúsi af gambra fyllist.
Áhrifin þau eru fín
og ekki til að skammast sín.
Sína bokku sérhver fékk
nú sötra þeir af krafti.
Ef ég mína upp nú drekk
eflaust fæ ég tremmaskrekk.
Skrekk ég fann nú skrýtinn því
Skrattann leit á veiðum.
Kallaði mig með kjaftagný:
Komdu nú í eldsins dý.
Dýflissu ég dvaldi í
er drottni afneitaði.
Svo úr henni fékk ég frí
er fjandanum ég hældi á ný.
Nýlega var níð mér ort.
Napurt var og beit mig.
Hætt var þar mitt geip og gort.
og grínað um mitt hjólasport.
Hjólasport að horfa á
mér heldur frekar leiðist.
Ég bíð þess frekar bolta að sjá
og bölva og ragna á sjónvarpsskjá.
Skjá minn kom hann krummi á.
Krafði mig um bita.
Blóðmörskeppi fékk mér frá.
Hann fló með þá í klettagjá.
Klettagjána klýf ég nú
krumma heima að sækja.
Skoða vil hans börn og bú
og bæta þannig mína trú.
Trúlega ég tel og sé
að tekjur litar hafi.
Ekki gat ég falið fé.
Fá því verð ég skuldarhlé.
Skuldarhlé ég skellti í
og skattinn ekki greiddi.
Ærlegt svo ég fór í frí
og fann mér dágott bríarí.
Í bríaríi boðinn var
í brugghús til að drekka.
Skenkt var vín í bolla á bar.
En bjórinn var í spöndum þar.
Þar sem fötin fara vel
á flöskubjórum sterkum
verður mér nú vart um sel
og viskístaupin frekar tel.
Tel ég ekki eftir mér
að yrkja ljótar vísur
um hann sem er þrár og þver.
og þykir vera í orðum ber.
Ber ég oft á baki fól
sem breytir minni stefnu.
Aldrey fæ frá honum hól
og heldur ekki nýjan kjól.