Lífið allt er feigðarflan
og fjandans bömmer.
Dáið er hið dökka man
Donna Summer.
Til fótkulda ég fann í gær
í fjandans snjónum.
Mér hefði vísast verið nær
að vera í skónum.
Bófa djöflar bundu niður blokkarslápinn.
Brutu svo upp bissuskápinn.
Fornrit vor og fegurst ljóð
frekar virðast þunn,
við samanburð er syrgir þjóð
soninn hemmagunn.
Líf þessa skuldseiga skríls
sem skítkastið stundar til ÍLS
má líklega bæta
og lúsera kæta
með undirskrift æðislegs díls.
HHG þarf reglulega að tjá sig um málefni líðandi stundar á þann hátt að ég fæ hroll.
Rifjast þá alltaf upp fyrir mér sú frétt þar sem Hreinn Loftsson, gamli vinur hans, sagði eftirfarandi (aðeins umorðað en engri merkingu breytt):
Af Hannesi heilmikið dró
er hent‘onum Davíð í þró.
Hágrét í síma
í heillangan tíma
uns Hreinn fékk af volinu nóg.
hvur bur Treystir þeim, í þessum heim
sem Reyna, án þess að leyna
leka að kanna og fréttir að Hanna?
Með lausa skrúfu' og lausa ró
og löggildur hálfviti talinn,
hlusta' eg gapandi á Bubba´ og Bó
baula út í fagnandi salinn.
Þá ein af Hrunsins hetjum
hýr mælti' í lund:
Í fyrsta sæti setjum
siðblindrahund.
Guðrúnu Bryndísi' eg bezta tel
bak við Rafha eldavél
Guðna Ágústs góðu ráð
gefast bezt í lengd og bráð.
Tortólu þeir sóttu sjóð
til svikamyllu véla.
-"Alltaf græðir þessi þjóð
þegar" auðmenn stela.
Ein er ofur lessan,
eins og vanað fress.
Grána, gamla skessan,
greedy, but power-less.
Fimmta boðorðið: "Þú skalt eigi mann deyða... nema í neyð." Segir biskup íslensku þjóðkirkjunnar.
Biskup af boðorði leggur
er byssuna tekur upp steggur.
Ég vona að þeir deyð-
i aðeins í neyð
er syndina gælir við seggur.
http://ruv.is/frett/biskup-segir-sorglegt-ad-thorf-se-a-byssum
Sigmundur í sinni stinnur
er sigurvon.
Hann er alveg eins og Finnur
Ingólfsson.
Samsærið gegn Sigmundi
-það seinna kom á daginn
var gert af myrkum mannhundi
mun víst Soros heita gaginn..
Samsærið sem Soros hóf
Sigga Inga ruslið lauk
Aðförin var einkar gróf
ógeðfellt var ruslins bauk.
Stutt í tár, og stirð lund,
stjórnin er að falla.
Samtaka nú, Sigmund
seiga, skulum kalla.
Fólkið það sem epli stal í Edens dal
út var rekið; það tældi fjandi.
Upplýsingum Glitnis banka Stundin stal.
Stuggum henni burt úr okkar landi.