Að mér gelta unglingar
út af helti minni.
Af stalli velta víkingar
nú vöndum beltakynni.
Orðaforðinn er í dag
undir skorður seldur.
Orða forðinn er í dag
undir skorður seldur
Norður storði stakk í brag
starði á borðið hrelldur.
Gleymdi í flýti fyrri part
Forláts hlýt að biðjast
Orða forðinn er í dag
undir skorður seldur
Norður storði stakk í brag
starði á borðið hrelldur.
Fyrripartinn finn ég ey,
fel því kvartið varla.
Fyrripartinn finn ég ey
fel því kvartið varla.
Segi hart við þig: " Nú þey".
Þykist bjartur harla.
Utan gátta oft eg er
af sak drátt minn langan
Gleymdi í flýti fyrri part
Forláts hlýt að biðjast
Út þó slít við kvein og kvart:
orðin nýt burt ryðjast.
Utan gátta oft eg er
af sak drátt minn langan.
Æ ég sáttur inn hér fer
og yrki háttinn rangan.
Aldrey hef ég átt mér draum
um argaþref og kítur.
Aldrei hef ég át mér draum
um argaþref og kítur
Lífi gaf ég lausan taum.
Löngun sefa hlýtur.
Láttu gjalla góði minn
gýgju snjalla þína.
Láttu gjalla góði minn
gýgju snjalla þína.
Svo um hjalla söngurinn
seiði alla fína.
Rauðu ljósin reynast best
ef raunadrós skal finna.
Rauðu ljósin reynast best
ef raunadrós skal finna.
Þær fremur kjósa góðan gest
en gömlum bósa að sinna.
Ætla að skunda út á bar
eftir blundinn sæta
Ætla að skunda út á bar
eftir blundinn sæta.
AA-fumd ég finn ey þar,
en flöskustund ágæta.
Ef á skjá þar uppi á vegg
einhvern sjá má bolta
Ef á skjá þar upp á vegg
einhvern sjá má bolta
þá líka gráan sitja segg
og soninn þráa og stolta.
Ég er að hnoða ólseigt deig.
i alveg hoðalega köku.
Ég er að hnoða ólseigt deig.
i alveg hroðalega köku.
Ef hún loðir saman seig
ég senn mun skoða inn í böku.
Inn í vetur, vor og haust
víst skal letra sumar.
Inn í vetur vor og haust
víst skal letra sumar.
Og því geta efalaust
ört sig betrað gumar.
Held eg sízt að hæfi mér
að hæða blístur þitt.
Held eg sízt að hæfi mér
að hæða blístur þitt.
Út það brýst sem brotið gler
og bölvun hlýst óstytt.
Allt mitt ljós fór undir ker
er að drósin bjarta
Allt mitt ljós fór undir ker
er að drósin bjarta
rétti dós af mauki mér
og mærð hún jós frá hjarta.
Víst hér nýt eg virðingar
vann á skítakömrum.
Víst ég nýt hér virðingar
vann á skítakömrum.
Nú gera hlýt við girðingar
þó gjarnan lýti af hömrum.
Þó mér ýsa þyki góð
í þorsk mig fýsir ekki.
Þó mér ýsa þyki góð
í þorsk mig fýsir ekki.
Vil ég hnísu væna á glóð
en vart ég lýsu þekki.
Nautaketið nýtt á glóð
núna set ég glaður.
Nautaketið nýtt á glóð
núna set ég glaður.
Svo fram að vetri færi í ljóð
með fínu letri, hraður.
Ormadósir opnast þá
engin hrós má finna.
Ormadósin opnast þá
engin hrós má finna
ætli drós með hýrri há
honum sósu að kynna.
Ísinn gnestur undir mér
áfram hestinn kný ég sporum