Hemlavirkni hollur er. Diskahemlar.
Helst á þennan réttur fer. Diskur.
Músavinur margoft sér. ?
Mynd og hljóð í sellum ber. Diskur.
Regína er með þetta. Getur einhver reynt að leysa úr þriðju línunni úr því að lykilorðið er fundið?
Hemlavirkni hollur er. ..... bremsudiskur
Helst á þennan réttur fer. .....matardiskur
Músavinur margoft sér. ....?? heimaalin mús borðar af diskum
Mynd og hljóð í sellum ber .... CD diskur
Sem sagt diskur
Hemlavirkni hollur er. ..... bremsudiskur
Helst á þennan réttur fer. .....matardiskur
Músavinur margoft sér. ....?? heimaalin mús borðar af diskum
Mynd og hljóð í sellum ber .... CD diskur
Sem sagt diskur
of sein Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Þetta með músavininn er enn ekki komið.
Þetta með músavininn er enn ekki komið.
þykist vita að þetta hafi eitthvað með tölvumús að geraStarir þegjandi út í loftið
Þetta með músavininn er enn ekki komið.
Er Magnús Skarphéðinsson músavinurinn? Klórar sér í miltanu
Vitanlega, Golíat. Hann er formaður Músavinafélagsins og sér öðrum oftar fljúgandi diska.
Jæja, ein vísnagáta: Kvenkyns nafnorð í öllum tilfellum nema einu, en þar er það sagnorð.
Gróður fagur, gulgrænt tré
Grannríkis er eyja smá.
Gjörningur einn gefur fé.
Gælunafn er konu á.
Munið að rökstyðja vel.
Jæja, ein vísnagáta: Kvenkyns nafnorð í öllum tilfellum nema einu, en þar er það sagnorð.
Gróður fagur, gulgrænt tré >> Selja. Víðitegund (Salix Caprea minnir mig) sem verður oft ægifagurt tré.
Grannríkis er eyja smá. >> Eyja á Sognfirði.
Gjörningur einn gefur fé. >> Að selja e-ð gefur oftast fé í aðra hönd.
Gælunafn er konu á. >> „Selja litla fæddist fyrir vestan...“
Munið að rökstyðja vel.
Heimskautafroskur er með þetta... Vel af sér vikið (eða var þetta auðvelt?)...
nei Froskurinn er snillingur.
Grunaði það svo sem...Ljómar upp
Í miðbæinn úr fellum fer,
af færi löngu skotið er,
súkkulaðið mettar malla,
möginn Sveins ég þekki Palla.
Bráð?
Í miðbæinn úr fellum fer, - Bráð fer úr fellum, t.d. músagildrum
af færi löngu skotið er, - Veiðidýr er bráð
súkkulaðið mettar malla, - Súkkulaðibráð
möginn Sveins ég þekki Palla. - ? Páll Sveinsson, flugvél
Ég held að Skabbi sé með þetta.