Ekki var það Nafni.
Fortsat fra forrige side:
Hver art:
Fögur kona fötluð geit
Fúlar hnetur, kommi.
Úldin tuska útí sveit
Úlvaldi með rommi.
Útilokaðir hafa verið: hlewagastiR, Gélmi, Billi, Bölverkur, Z.Natan, lappi/Krummó, Grislingur og Nafni.
Haraldur Austmann?
Er þetta af einhverjumm samyrkjuþræði?
Þetta er nógu ruglaður kveðskapur til að geta verið ættaður úr hausnum á Nermal.
Grýta: Nei, ekki var það Haraldur Austmann.
Ufsi: Engin samyrkja hér.
Huxi: Jammz. Þú átt leik.
Ha? Ég? Nú dámar mér ekki.
En hver orti?
Upprifinn á ekkert hrós,
aldrei segir fagurt.
Teygar bjór úr tómri dós,
tyggur kjötið magurt.
Skabbi?
Einhver mannorðsmorðinginn sýnist mér.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Hvorki Skabbi eða Grislingur og eg veit ekki til að höfundur sé vanur því aflífa mannorð meira en þörf krefur. Glottir eins og gúanófugl
Hef ég ekki bara gert þetta sjálfur á einhverjum öfugmælaþræði eða hagyrðingamóti?
Upprifinn hefur ort þetta sjálfur, óbeina játningu hans má lesa hér nokkrum innleggjum ofar.
Nei Hlebbi. Uppi er orðljótari en þetta ágæta skáld.
Nei Skabbi. Hlebbi er orðljótari en þetta ágæta skáld.
Garbo?
Já Uppi. Og hefur áræðanlega talað af reynslu. Glottir eins og fífill