Hugsanlega má segja, að maðurinn búi í Evrópu, en lyf bruggar hann eigi. Vilji hann losna við óvini sína byrlar hann eigi eitur, en notast við stórvirkari aðferðir.
Notar maðurinn efnafræðikunnáttu sína í stríðsrekstri?
Þetta er pottþétt Hemmi Gunn... þetta er alltaf Hemmi Gunn.
Hvorki Hemmi, né Umarov, en þessi Rússi notar sannarlega efnafræðiþekkingu sína í stríðsrekstri.
Er téður Rússi sýndarpersóna í töluvölvuspili?
Hefur þessi ágæti Rússajeppi fengið Nóbelsverðlaun?
Hertoganum svörum vér einfaldri neitun, en Nermli meður því, að slík verðlaun eru eigi tiltekin í ágripi meginatburða æfi hans.
Nýtur sá gerskri velvildar Kremlarbænda - starfar hann e.t.v. á þeirra vegum?
Nei, teljum vér víst, að hann hafi bakað sér óvild téðra bœnda.
Tengist kauði Téténíu?
Eigi það vér vitum, þó væntanlega hafi hann beitt gereyðingarvopnum þar.
Shamil Basayev er væntanlega með rússneskt ríkisfang en hann myndi drepa þig ef þú kallaðir hann Rússa. Varla áttu við hann?
Varla eigum vér við hann.
Gæti skeð að kauði væri dauður?
Sé hann enn ódauður dettur mér í hug Semion Mogilevich. Annars er ég farinn að sofa, hvað sem því líður. Góða nótt.
Maðurinn er ódauður enn, þó margir telji hann nokkuð við aldur.
Bjóðum vér yður góða nótt, Hlégestur kær.
Heitir maðurinn Boris?