Ekki er með hýrri há
hornhgrýtið að tarna .
Að honum læðist gríma grá
gjörð úr hænsna skarna.
Ljótt er að sparka í liggjandi hró,
lélegt, vart sæmandi köppum.
Í Lappa ég fýra mun fúslega þó
með froskalöppum.
„Fýrar“ í fýr
froskur hýr,
garnir gnýr,
glussa spýr.
Nú er að hefjast nýtt ævintýr.
Ekki er hlebbI ætið skýr
í honum versta fólið býr
framtíðar hann brennir brýr
bölvaður nú vits mér frýr.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Úr höfuðbenjum heili rann:
hugvit Billa fraus.
Allt daga arkar hann
með ör í gegnum haus.
(Viljirðu forðast vandræði:
vefð'um'ana handklæði.)
Hlebbi eina fjjöður fann
fuglinn var í sárum.
Æði þá á ræfil rann,
rauð voru augun tárum.
Lappi er sem nornar nögl,
nöguð upp í kviku.
þyrfti sá í huppinn högl,
hundrað skot á viku.
Mjási er árans fjandans fretur
furðulegur eltir mís.
Rfið kjaft,sá garmu getur
gapandi er dagur rís.
Það er eins og lappa leiðist
og leggi sitt höfuð á stokk
ég tárvotur trúlega neyðist
að tálga þurrt höfuð frá skrokk
Upprifinn í lingmóa læðist
ljótur á svipinn og þver..
Í sveitinni fjóshauginn hræðist
helvíti er maðurinn sver.
Valda því vitgloppur
ef vargur bítur?
Helvítis hlandkoppur
og hundaskítur?
Strokkar í belgjum bulla.
Og Bagglýtinga yfir drulla
Þeir ættu þó að
Sig halda við það
Í hlandforinni alsælir sulla
Veður elginn gárGrímur
gaular föskum rómii
Er virkilega gráGrímur
garmurinn þessitómi?.
------------------------------
þekkið þið hann Grímsa gráa
garmurinn er haldinn þráa,
um gaurinn þennan ekkert veit,
sendi karlinn bara á beit..
Lappi er ljóða þjarki..
Lappi er sviptur kjarki.
Lappi er látúns barki.
Lappi er á vísna harki.
Bullustrokkinn tíma tók
truntuna að laga.
í gegnum pils og prjóna brók,
pjakkurinn þurfti að kjaga.
Lá í Limi bjarka
lappi - þá var friður
Í heim hans færðist harka
hann rann slappur niður.
Bullustrokkur blaðrar enn,
beinið árans tarna..
Held ég bara setjann senn
og sáldri á hann, skarna.
Lappi er skrýtin skítafýla
Skrattanum í Víti frá.
Heyrast boðar elda ýla
ef ógeðið það líður hjá.